The Bride Test
Snið: Kilja
ISBN: 9781786499639
Pickup currently not available
Details
Höfundur: Helen Hoang
Khai Diep telur sig ekki hafa neinar tilfinningar. Ekki þær stóru og mikilvægu, eins og sorg eða ást. Hann heldur að eitthvað sé að honum, en fjölskylda hans veit betur. Einhverfugreiningin hans þýðir ekki að hann finni ekki fyrir tilfinningum, heldur að hann upplifi og vinni úr þeim á annan hátt.
Þegar Khai neitar alfarið að íhuga samband ákveður móðir hans að taka málin í sínar hendur. Hún fer aftur til Víetnam í leit að hinni fullkomnu eiginkonu fyrir son sinn. Esme Tran hefur alla tíð fundið fyrir því að hún eigi sér ekki stað í heiminum. Þegar henni býðst tækifæri til að fara til Bandaríkjanna og hitta mögulegan eiginmann getur hún ekki látið það fram hjá sér fara. Kannski gæti þetta líka orðið tækifærið sem fjölskylda hennar þarfnast.
En það reynist erfiðara en Esme bjóst við að heilla Khai. Hún leggur sig alla fram við að kenna honum hvað ást er, en smám saman fer kennslan að hafa óvænt áhrif á hana sjálfa. Hún verður ástfangin af manni sem er sannfærður um að hann geti aldrei elskað hana á móti.
Þegar tíminn sem Esme á eftir í Bandaríkjunum fer að styttast þarf Khai að horfast í augu við tilfinningar sínar. Getur hann leyft hjartanu að ráða för og hleypt ástinni inn?
The Kiss Quotient sjálfstæð sería, bók #2.
Materials + Care
We prioritize quality in selecting the materials for our items, choosing premium fabrics and finishings that ensure durability, comfort, and timeless appeal.
Shipping + Returns
We strive to process and ship all orders in a timely manner, working diligently to ensure that your items are on their way to you as soon as possible.