Um Bókakrydd

Bókakrydd er lítil bókabúð tileinkuð rómantík.

Hér finnur þú vandlega valdar enskar og íslenskar ástarsögur — bækur sem eiga heima á bókahillu þeirra sem vilja gefa sér tíma til að sökkva sér í góða sögu. Markmiðið er einfalt: að skapa notalegt rými fyrir rómantík og róleg augnablik og skapa samfélag í kringum rómantík og lestur. Auk bókanna finnur þú hér lítið úrval af bókakryddi — hlutum sem gera lestrarstundina enn notalegri.

Ég heiti Íris og hef alltaf leitað í bækur þegar mig langar að hægja á mér. Það er fátt betra en að sökkva sér í góða ástarsögu — stundum ljúfa og krúttlega, stundum aðeins meira kryddaða.

Hvort sem þú leitar að kósý rómantík eða að sögum með meira kryddi, vona ég að þú finnir hér bók sem fær þig til að staldra við og njóta. 

— Íris