{"product_id":"the-paradise-problem","title":"The Paradise Problem","description":"\u003cp\u003eHöfundur: Christina Lauren\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eAnna Green hélt að hún hefði gifst Liam „West“ Weston til að fá ódýrt húsnæði á meðan hún stundaði nám við UCLA. Hún hélt líka að hjónabandinu væri lokið þegar þau útskrifuðust og héldu hvort sína leið. Þmemur árum síðar er Anna fátækur listamaður sem nær varla endum saman, á meðan West er prófessor við Stanford.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eWest er einn fjögurra erfingja Weston Foods-veldisins en hefur lítinn áhuga á að vinna fyrir fyrirtækið sem fjölskylda hans hefur byggt upp. Arfurinn upp á hundrað milljónir dollara freistar hans þó, en ein lítil hindrun stendur í vegi: samkvæmt erfðaskrá afa hans fær hann ekki krónu fyrr en hann hefur verið hamingjusamlega giftur í fimm ár.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eÞegar fjölskyldan fer að þrýsta á hann um að kynna eiginkonu sína neyðist West til að leita til einu manneskjunnar sem hann vill síst kynna fyrir forríkum foreldrum sínum, fyrrverandi eiginkonu sinnar. Anna þarf að leika hlutverk hinnar fullkomnu eiginkonu, en þegar þau eyða meiri tíma saman fer West að efast um hvort hjónaband þeirra sé í raun bara leikur.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eÞað sem byrjaði sem lygi verður sífellt raunverulegra og West þarf að ákveða hvort hundrað milljóna dollara arfurinn sé þess virði að hætta á að missa ástina sem óvænt varð til á milli þeirra.\u003c\/p\u003e","brand":"Bókakrydd","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":48957837770854,"sku":"9780349440415","price":3690.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0699\/9719\/9462\/files\/9780349440415_7bc7af3b-c6a6-40e0-8749-270fe4195eff.jpg?v=1791394825","url":"https:\/\/bokakrydd.is\/en\/products\/the-paradise-problem","provider":"Bókakrydd","version":"1.0","type":"link"}