{"product_id":"the-bride-test","title":"The Bride Test","description":"\u003cp\u003eHöfundur: Helen Hoang\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eKhai Diep telur sig ekki hafa neinar tilfinningar. Ekki þær stóru og mikilvægu, eins og sorg eða ást. Hann heldur að eitthvað sé að honum, en fjölskylda hans veit betur. Einhverfugreiningin hans þýðir ekki að hann finni ekki fyrir tilfinningum, heldur að hann upplifi og vinni úr þeim á annan hátt.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eÞegar Khai neitar alfarið að íhuga samband ákveður móðir hans að taka málin í sínar hendur. Hún fer aftur til Víetnam í leit að hinni fullkomnu eiginkonu fyrir son sinn. Esme Tran hefur alla tíð fundið fyrir því að hún eigi sér ekki stað í heiminum. Þegar henni býðst tækifæri til að fara til Bandaríkjanna og hitta mögulegan eiginmann getur hún ekki látið það fram hjá sér fara. Kannski gæti þetta líka orðið tækifærið sem fjölskylda hennar þarfnast.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eEn það reynist erfiðara en Esme bjóst við að heilla Khai. Hún leggur sig alla fram við að kenna honum hvað ást er, en smám saman fer kennslan að hafa óvænt áhrif á hana sjálfa. Hún verður ástfangin af manni sem er sannfærður um að hann geti aldrei elskað hana á móti.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eÞegar tíminn sem Esme á eftir í Bandaríkjunum fer að styttast þarf Khai að horfast í augu við tilfinningar sínar. Getur hann leyft hjartanu að ráða för og hleypt ástinni inn?\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eThe Kiss Quotient sjálfstæð sería, bók #2.\u003c\/p\u003e","brand":"Bókakrydd","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":48957846454374,"sku":"9781786499639","price":2790.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0699\/9719\/9462\/files\/9781786499639_b787d6f2-1df3-4390-bbec-c02fff537771.jpg?v=1791394826","url":"https:\/\/bokakrydd.is\/en\/products\/the-bride-test","provider":"Bókakrydd","version":"1.0","type":"link"}